Fotbolti.net
14.03.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Ægir fær fimm leikmenn frá Val (Staðfest)

Ægir fær fimm leikmenn frá Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Ægir

Ægir í 2. deild hefur fengið fimm leikmenn til liðs við sig frá Val.

Um er að ræða þá Halldór Kristján Baldursson, Darra Egilsson, Andra Sigurðsson, Tómas Aron Tómasson og Breka Bjarnason en þeir eru allir fæddir árið 1994.

Leikmennirnir þreyttu frumraun sína með Ægi í 4-1 sigri liðsins á Tindastóli í Lengjubikarnum um síðustu helgi.
Þá hafa Ægismenn einnig fengið Daníel Rögnvaldsson, frá Augnabliki en hann er fæddur árið 1993.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.