14.03.14 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Farid Zato biður stuðningsmenn Þórs afsökunar

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Farid Zato hefur beðið stuðningsmenn Þórs afsökunar eftir að hann samdi bæði við Akureyarliðið og KR.
Eins og frægt er orðið samdi Tógómaðurinn við bæði félög en þau sömdu í fyrradag um að Farid muni ganga í raðir KR og leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Stuðningsmenn Þórs eru svekktir að hafa misst af leikmanninum og Farid hefur beðið þá afsökunar.

,,Ég bið alla stuðningsmenn Þórs afsökunar, sem voru ánægðir með að fá mig í liðið og sýndu mér það með skilaboðum á bæði twitter og facebook. #big #sorry,\" sagði Farid á Twitter í dag.
Farid var í lykilhlutverki hjá Víkingi Ólafsvík á síðasta tímabili en hann vann sér inn sæti í landsliði Tógó með góðri frammistöðu.
Sjá einnig:
Þórsarar með samning við Farid - Framhaldið óljóst
KR vonast ennþá til að semja við Farid Zato
Farid Zato í eigu þriðja aðila?
Farid fer í KR (Staðfest)