14.03.14 - 15:11
Elvar Geir Magnússon
Heiðar Geir í Þrótt (Staðfest)

Heiðar Geir í leik með Fylki í fyrravetur.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Heiðar Geir Júlíusson hefur fengið félagaskipti í 1. deildarlið Þróttar. Hann er annar leikmaðurinn sem Þróttarar fá til sín í vikunni en í gær skipti Rafn Andri Haraldsson aftur til félagsins.
Heiðar er 26 ára sóknarmiðjumaður sem hefur æft með Þrótti undanfarnar vikur.
Hann lék með Fram til ársins 2009, fór svo til Angelholm í sænsku B-deildinni en gekk í raðir Fylkis fyrir síðasta tímabil.
Heiðar lék með Árbæjarliðinu fyrri hluta síðasta sumars en náði sér engan veginn á strik.
Þróttur hafnaði í tíunda sæti 1. deildarinnar síðasta sumar og náði að bjarga sér frá falli.