14.03.16 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Dougie Freedman rekinn frá Nott. Forest (Staðfest)

Dougie Freedman.

Mynd: Getty Images

Dougie Freedman.

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur rekið knattspyrnustjórann Dougie Freedman eftir 13 mánuði við stjórnvölinn.
Forest hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum í Championship deildinni og er í 14. sætinu eftir 3-0 tap gegn Sheffield Wednesday á laugardag. Freedman tók við starfinu af Stuart Pearce í febrúar 2015 og vann 19 af 57 leikjum sínum.

Paul Williams úr þjálfarateymi Nottingham Forest mun stýra liðinu út tímabilið. Friedman stýrði liðinu til 14. sætis á síðustu leiktíð.
Freedman byrjaði þjálfaraferil sinn vel og gerði góða hluti með Crystal Palace. Hann yfirgaf féagið og tók við Bolton árið 2012 og kom liðinu næstum því í umspil. Hann fór frá Bolton árið 2014 eftir að hafa einungis náð einum sigri í fyrstu 10 deildarleikjum tímabilsins.
Freedman hefur átt erfitt uppdráttar með Forest í ljósi þess að félagið hefur verið í félagaskiptabanni frá árinu 2014 og einungis geta fengið lánsmenn og menn á frjálsri sölu.