14.03.16 - 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Guðmunda Brynja lánuð til Noregs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið lánuð til norska úrvalsdeildarliðsins Klepp sem endaði um miðja deild á síðasta tímabili.
Jón Páll Pálmason er þjálfari félagsins og er María Þórisdóttir í leikmannahópnum.
Guðmunda verður hjá Klepp þar til Íslandsmótið byrjar og heldur þá heim til Selfoss. Fyrsti leikur tímabilsins hjá Klepp er gegn Avaldsnes eftir tvær vikur.

„Þetta er eitthvað sem ég er búin að stefna að lengi og er mjög spennt fyrir því að fá að prófa eitthvað nýtt. Klepp setti sig í samband við Selfoss og ég held að þetta eigi eftir að hjálpa mér og Selfossliðinu mikið í sumar,“ sagði Guðmunda í samtali við sunnlenska.is.
Guðmunda, sem er fyrirliði Selfyssinga, verður í Noregi í sex vikur og mun líklega ná fimm deildarleikjum.
Guðmunda, sem er fyrirliði Selfyssinga, verður í Noregi í sex vikur og mun líklega ná fimm deildarleikjum.
Heimild: Sunnlenska