Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. mars 2020 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ilicic leikmaður vikunnar í Meistaradeildinni - Skoraði fernu
Mynd: Getty Images
Josip Ilicic, framherji Atalanta, hefur verið funheitur að undanförnu og er leikmaður vikunnar í Meistaradeild Evrópu.

Hann skoraði fernu á útivelli gegn Valencia er Atalanta komst í 8-liða úrslit keppninnar í fyrsta sinn.

ilicic skoraði einnig í fyrri leiknum en Atalanta vann samanlagt 8-4. Ilicic er 32 ára gamall Slóveni og er hann kominn með 15 mörk í 21 deildarleik í Serie A.

Síðustu tólf leiki hefur Ilicic gert sextán mörk í öllum keppnum. Atalanta er að gera góða hluti í Serie A og situr í fjórða sæti sem stendur, með 48 stig eftir 25 umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner