14.03.20 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
UEFA skoðar að spila EM í desember

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Telegraph greinir frá því að evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, skoðar nú þann möguleika að færa Evrópumótið alls staðar fram í desember.
Evrópumótið á að fara fram í sumar en hverfandi líkur á að það rætist úr því vegna kórónaveirunnar sem hefur verið dreift um alla Evrópu.
Fyrsta hugleiðing UEFA var að færa mótið fram á sumarið á næsta ári en nú er verið að skoða að færa til leiki í deildakeppnum til að gera pláss fyrir EM á miðju tímabili.
Búið er að fresta flestum deildakeppnum Evrópu um nokkrar vikur og nánast útilokað að umspilsleikir fyrir EM fari fram í lok mars.