Fotbolti.net
14.03.22 - 12:44
Elvar Geir Magnússon

Fjölnir kaupir Reyni Haralds frá ÍR (Staðfest)

Reynir skoraði þrennu gegn Fjölni í fyrra.

Reynir skoraði þrennu gegn Fjölni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur samþykkt tilboð Fjölnis í Reyni Haraldsson og skrifað undir félagaskipti hans.
„Við þökkum Reyni ánægjuríkt samband á liðnum árum og hlökkum til að sjá hann styðja strákana í sumar úr stúkunni með sitt #hvítbláahjarta," segir í tilkynningu ÍR-inga á Facebook.

Reynir er 26 ára bakvörður og skoraði þrennu gegn Fjölni í bikarnum í fyrra þegar ÍR-ingar unnu óvæntan 3-2 sigur gegn Grafarvogsliðinu.

Sjá einnig:
Reynir: Ég veit ekki hvað var í gangi

Fjölnir hafnaði í þriðja sæti Lengjudeildarinnar í fyrra en Reynir skoraði sex mörk í 20 leikjum þegar ÍR hafnaði í áttunda sæti 2. deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.