14.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jordan Brown semur við nýstofnað félag í Kanada (Staðfest)

Jordan Brown.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jordan Brown.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Jordan Brown, sem olli miklum vonbrigðum hjá Fylki síðasta sumar, er búinn að finna sér nýtt félag.
Hann er búinn að ganga frá samningi við Electric City í Kanada. Um er að ræða nýstofnað félag sem mun spila í svæðisdeild í Ontario í Kanada á þessu ári.
Hinn 25 ára gamli Brown er uppalinn hjá Arsenal og West Ham, stórum félögum á Englandi. Hann spilaði í Tékklandi og Þýskalandi áður en hann kom til Íslands í fyrra og gekk í raðir Fylkis. Hann skoraði ekkert mark í 16 leikjum fyrir Fylki.
Brown þekkir vel til í Kanada því hann lék einnig þar í landi áður en hann kom til Íslands. Hann skoraði sjö mörk í 33 leikjum fyrir Cavalry FC frá 2019 til 2020.
Það er vonandi fyrir hans hönd að honum gangi betur í Kanada en á Íslandi.