Fotbolti.net
14.04.13 - 08:30
Daníel Freyr Jónsson

Gladbach fær Max Kruse frá Freiburg (Staðfest)

Max Kruse.

Max Kruse.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Borussia Mönchenglabach hefur tryggt sér þjónustu Max Kruse og gengur hann í raðir félagsins frá Freiburg í sumar.
Þessi 25 ára gamli leikmaður skrifaði undir samning til ársains 2017 hjá Gladbach, en hann gekk í raðir Freiburg fyrir yfirstandandi leiktíð.

Gladbach hefur verið að leitast eftir skapandi leikmanni undanfarið og er félagið ánægt með að klófesta Kruse.

,,Við erum mjög ánægðir með að Max Kruse hafi ákveðið að koma til okkar. Hann er fljótur og fjölhæfur leikmaður með frábæra tækni sem mun klárlega veita okkur fleiri möguleika fram á við,\" sagði Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Gladbach.

Kruse hefur farið á kostum með Freiburg á leiktíðinni og skorað 9 mörk og lagt upp 8 önnur í 28 leikjum á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.