14.04.16 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kjartan Sigurðsson í Hamar (Staðfest)

Kjartan í leik með Hamri árið 2009.

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson

Hamar úr Hveragerði hefur fengið liðsstyrk fyrir keppnina í 4. deild í sumar en varnarmaðurinn Kjartan Sigurðsson hefur gengið til liðs við félagið.
Kjartan kemur frá Bandaríkjunum þar sem hann var í námi og starfi.
Kjartan er ekki óþekktur í Hveragerði en hann spilaði með Hamar árið 2009 í 2. deild.
Eftir það tímabil fór hann á Selfoss þar sem hann spilaði með liðinu í Pepsi deildinni og 1. deild. Kjartan hefur einnig spilað í Finnlandi.
„Þetta er mikill fengur fyrir félagið þar sem Kjartan er mikill leiðtogi og leggur sig allann fram innann vallar sem utan fyrir liðið,\" segir á heimasíðu Hamars.