Atli Jónasson í Leikni R. (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Jónasson er kominn með leikheimild fyrir Leikni R. sem leikur í Bestu deildinni í sumar.
Atli er 35 ára gamall og þótti eitt sinn vera meðal efnilegustu markvarða landsins en erfið meiðsli settu strik í reikninginn.
Atli ólst upp hjá KR og lék mest fyrir KV á ferlinum en síðast spilaði hann þrjá keppnisleiki sumarið 2020, tvo með KFG og einn með Smára.
Atli var í fyrra ráðinn yfirþjálfari yngri flokka hjá Tindastól. Hann var þá aðstoðarþjálfari meistaraflokks og tók við meistaraflokki í haust þegar Haukur Skúlason hætti með liðið.
Þar áður hafði Atli þjálfað KV og hefur þessi markvörður því mikla reynslu af hinum ýmsu hliðum fótboltaheimsins hér á landi.
Atli á 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þar á meðal 10 fyrir U19.
