14.04.22 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Njarðvík fær bræður að austan (Staðfest)


Mynd: Njarðvík


Mynd: Njarðvík
Bræðurnir Eiður Orri og Heiðar Snær Ragnarssynir eru búnir að skrifa undir tveggja ára samninga við Njarðvík.
Báðir eru þeir efnilegir, sá eldri Heiðar er fæddur 2002 og kemur frá Leikni Fáskrúðsfirði en sá yngri er fæddur 2004 og kemur frá Einherja. Þeir voru báðir byrjunarliðsmenn hjá sínum liðum og eiga samanlagt tæpa 150 keppnisleiki að baki með meistaraflokki.
Eiður hefur æft og spilað með Njarðvík í vetur og staðið sig vel. Það verður áhugavert að fylgjast með bræðrunum í 2. deildinni í sumar.
Þess ber að geta að eldri bróðir þeirra, Gísli Freyr Ragnarsson, lék með Njarðvíkurliðinu til fjölda ára.
„Við bjóðum bræðurna hjartanlega velkomna til Njarðvíkur."
