14.05.13 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Framherji frá Tógó til Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa fengið framherjann Anthonio Savant De Souza í sínar raðir.
Anthonio er fæddur árið 1994 en hann kemur frá Tógó. Haukar hafa áður skoðað þann möguleika að fá leikmann frá Tógó.

,,Við fengum einn leikmann frá Tógó sem æfði með okkur í tíu daga í fyrra,\" sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Hauka við Fótbolta.net í síðustu viku.
,,Okkur leist ágætlega á hann, hann var í landsliðshóp Tógó í Afríkukeppninni og við ætluðum að fá hann hingað núna en hann fór annað. Við erum í góðu sambandi við Tógó. Við eigum mann sem þekkir til þar og er að hjálpa okkur.\"
Anthonio er kominn til landsins og verður með Haukum gegn Grindavík í 1. deildinni á föstudagskvöld.