14.05.14 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Aron Lloyd Green í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Aron Lloyd Green fékk á dögunum leikheimild í 1. deildarlið Þróttar en hann kemur á lánssamningi frá FH.
Aron er fæddur 1993 og spilaði með HK í fyrra.

Hann fékk tækifæri með FH á undirbúningstímabilinu núna í vetur.
Í gær lék hann sinn fyrsta leik með Þrótti þegar liðið vann 5-0 sigur gegn KFS í Borgunarbikarnum.
Þróttarar byrja tímabilið vel en þeir unnu 4-1 útisigur gegn Haukum í fyrstu umferð 1. deildarinnar um síðustu helgi.
Í næstu umferð leikur Þróttur gegn KA en sá leikur verður á laugardaginn klukkan 14.