Fotbolti.net
14.05.14 - 11:40
Magnús Már Einarsson

KA semur við varnarmann sem FH skoðaði (Staðfest)

Karsten Smith (til vinstri) í leik með FC New York gegn New York Red Bulls.

Karsten Smith (til vinstri) í leik með FC New York gegn New York Red Bulls.

Canon

Mynd: Getty Images

KA hefur fengið bandaríska varnarmanninn Karsten Smith í sínar raðir. Smith var á reynslu hjá FH í mars síðastliðnum en fékk ekki samning hjá Fimleikafélaginu.

Smith er 25 ára gamall og 191 cm hæð á en hann var síðast á mála hjá VPS í Finnlandi þar sem hann hjálpaði liðinu að ná Evrópusæti í fyrra.

Smith, sem er örvfættur, hefur einnig leikið með bæði San Antonio Scorpions og FC New York í heimalandi sínu.
Smith gæti leikið sinn fyrsta leik með KA þegar liðið heimsækir Þrótt í 1. deildinni á laugardag.

KA tapaði 3-2 gegn Víkingi Ólafsvík í 1. umferðinni í 1. deildinni um síðustu helgi en liðið burstaði Magna Grenivík 7-0 í Borgunarbikarnum í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.