14.05.14 - 22:28
Magnús Már Einarsson
Magnús Otti í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir hefur fengið kantmanninn Magnús Otta Benediktsson í sínar raðir en hann samdi í kvöld við félagið út tímabilið. Fylkismenn.is greina frá þessu.
Magnús er 20 ára vængmaður sem er uppalinn hjá HK en gekk upp úr 2.flokk hjá KR síðastliðið haust.
Eftir dvölina hjá KR tók óvissa við hjá Magnúsi og flutti hann til London ásamt bróður sínum
og fór að vinna á hamborgarabúllu Tómasar þar í landi.
Bróðir Magnúsar plataði hann til að spila með liði sínu á áhugamannamóti og þar sló Magnús gjörsamlega í gegn og heillaði útsendara frá Enska úrvalsdeildarliðinu Crystal Palace sem buðu honum til æfinga.
,,Hann æfði með þeim í 4 vikur en ákvað að snúa heim og erum við Fylkismenn gríðalega ánægðir að þessi efnilegi piltur skuli vera kominn í Árbæinn,\" segir á Fylkismenn.is.

Heimild: Fylkismenn.is