Fotbolti.net
14.05.14 - 22:01
Brynjar Ingi Erluson

Michael Abnett og Mark Taylor í Víking R. (Staðfest)

Michael Abnett í leik með BÍ/Bolungarvík

Michael Abnett í leik með BÍ/Bolungarvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ívar Atli Sigurjónsson

Víkingur Reykjavík úr Pepsi-deild karla hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi átök í sumar en liðið hefur fengið þá Michael Abnett frá BÍ/Bolungarvík og Mark Taylor frá Lanark United. Þetta kemur fram á Vísi í kvöld.
Forráðarmenn Víkings staðfestu í samtali við Vísi í kvöld að báðir leikmennirnir væru búnir að samþykkja eins árs samning hjá félaginu en Taylor kemur frá Skotlandi á meðan Abnett hefur leikið hér á landi undanfarin ár.

Abnett er 25 ára gamall vængmaður en hann hefur leikið 40 deildar- og bikarleiki með BÍ/Bolungarvík frá 2011 er hann kom til liðsins. Hann er uppalinn hjá Crystal Palace og var þá einnig á mála hjá Mansfield Town.

Mark Taylor kom þá frá Lanark United en hann er 21 árs gamall framherji. Hann er uppalinn hjá Glasgow Rangers og lék þar eitt tímabil áður en hann samdi síðar við Kilmarnock.

Víkingar hafa einungis skorað tvö mörk í fyrstu þremur umferðum deildarinnar en Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins, hefur ekki farið leynt með óskir sínar um annan framherja í liðið og eru því miklar vonir bundnar við Taylor.

Taylor og Abnett ættu þó að vera til taks og komnir með leikheimild fyrir leikinn gegn Fylki á mánudag.

Zephaniah Thomas, sem hafði verið á reynslu hjá Víkingum, semur ekki við félagið en Víkingar töldu hann ekki í nægilega góðu formi til þess að hjálpa liðinu í sumar.

Heimild: Vísir.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.