14.05.16 - 07:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján Atli og Marko Blagojevic í Magna (Staðfest)

Blagojevic mun leika með Magna þetta sumarið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magni frá Grenivík er búinn að bæta við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin í 2. deild karla í sumar.
Kantmaðurinn Kristján Atli Marteinsson er kominn á láni frá Fram.
Kristján Atli kom ekki við sögu hjá Fram á síðasta tímabili, en þar áður lék hann með Selfossi.
Hjá Selfossi spilaði hann sjö leiki í 1. deildinni á síðasta tímabili.
Þá hefur Magni einnig samið við serbneska varnarmanninn Marko Blagojevic.
Þessi Serbi kom fyrst til landsins árið 2008 og lék þá með Víði Garði.
Hann kom síðan aftur tárið 2012 og lék þá með Völsungi. Hann átti frábært tímabil með Völsungi og hjálpaði liðinu að komast upp í 1. deild karla. Hann var meðal annars valinn í lið ársins sem þjálfarar og fyrirliðar deildarinnar völdu fyrir Fótbolta.net.
Blagojevic hefur áður spilað með Magna, en það gerði hann seinni part sumars árið 2013.
Hann spilaði með KF árið 2014, en er nú kominn aftur til Magna og mun hjálpa liðinu í 2. deildinni í sumar.
Magni byrjaði tímabilið á 1-1 jafntefli gegn fyrrum félagi Blagojevic, Völsungi, en liðið mætir öðru fyrrum félagi Blagojevic í dag, KF.