Hatice Cengiz hefur skrifað opið bréf til stuðningsmanna Newcastle þar sem hún biður þá um að reyna að verja félagið og koma í veg fyrir yfirtöku frá Sádi-Arabíu.
Cengiz var eiginkona blaðamannsins Jamal Khasoggi sem var myrtur í Istanbúl en talið er að Sádi-arabíski krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi verið á bak við morðið.
Bin Salman leiðir hópinn sem er nálægt því að ganga frá kaupum á Newcastle.
Cengiz var eiginkona blaðamannsins Jamal Khasoggi sem var myrtur í Istanbúl en talið er að Sádi-arabíski krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi verið á bak við morðið.
Bin Salman leiðir hópinn sem er nálægt því að ganga frá kaupum á Newcastle.
„Þið sem dyggir stuðningsmenn hafið sterka rödd í þessum málum. Ég boð ykkur um að hugsa út í það hvort það sé rétta leiðin fyrir ykkar félag og ykkar borg að taka tilboði frá Mohammed bin Salman," skrifar Cengiz en hún hefur áður skrifað til ensku ríkisstjórnarinnar og ensku úrvalsdeildarinnar vegna málsins.
„Ég bið ykkur um að sameinast um að vernda félagið sem þið elskið og borgina frá krónprinsinum og hans mönnum. Þeir vilja ekki kaupa félagið til að hjálpa ykkur og með ykkar hagsmuni í huga heldur bara fyrir eigin hagsmuni. Hjarta þeirra verður ekki hjá félaginu."
„Ég hvet ykkur til að senda þessi skilaboð hátt og snjallt til ensku úrvalsdeildarinnar, til stjórnar félagsins, til leiðtoga borgarinnar og til heimsbyggðarinnar. Við skulum ekki láta skugga falla á hina fallegu íþrótt fótbolta."
Khashoggi var blaðamaður frá Sádi-Arabíu sem var búsettur í Bandaríkjunum og sérhæfði sig í skrifum um stjórnarhætti í Sádi-Arabíu. Í október 2018 fór hann inn í sendiráð Sádi-Arabíu í Istanbúl til að sækja pappíra til að giftast Cengiz. Hún beið út í bíl en unnusti hennar kom ekki út aftur. Hann var myrtur í sendiráðinu.
Jamal Khashoggi's widow has written an open letter to Newcastle United fans imploring them "to unite to protect your beloved club and city from the Crown Prince and those around him"https://t.co/wK5twvtRij
— Miguel Delaney (@MiguelDelaney) May 13, 2020
Athugasemdir