Fotbolti.net
14.05.21 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Subway

England um helgina - Jói Berg gegn Bielsa

Jóhann Berg Guðmundsson.

Jóhann Berg Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það fara fram átta leikir í ensku úrvalsdeildinni þessa helgina og hefst veislan í kvöld með leik Newcastle og Manchester City. Þetta er fyrsti leikur City eftir að þeir voru krýndir meistarar í vikunni.
Á morgun eru þrír leikir og í hádeginu mætast Burnley og Leeds. Þarna eru tveir mjög mismunandi leikstílar að mætast og verður gaman að sjá hvernig fer. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar sitja í 15. sæti deildarinnar.

Southampton tekur á móti Fulham og Brighton mætir West Ham síðar á morgun.

Á sunnudaginn eru svo fjórir leikir þar sem hæst ber leikur West Brom og Liverpool. Lærisveinar Jurgen Klopp í Liverpool hafa ekki gefið upp vonina á Meistaradeildarsæti en til þess að ná því, þá þurfa þeir að vinna í sunnudag.

Alla leiki helgarinnar má sjá hér að neðan og þar fyrir neðan er stöðutaflan í deildinni. Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport.

föstudagur 14. maí
19:00 Newcastle - Man City

laugardagur 15. maí
11:30 Burnley - Leeds
14:00 Southampton - Fulham
19:00 Brighton - West Ham

sunnudagur 16. maí
11:00 Crystal Palace - Aston Villa
13:05 Tottenham - Wolves
15:30 West Brom - Liverpool
18:00 Everton - Sheffield Utd

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.