Fotbolti.net
14.06.13 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Denilson til Sao Paulo (Staðfest)

Denilson til Sao Paulo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski leikmaðurinn Denilson er genginn í raðir Sao Paulo í heimalandinu, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.
Denilson, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Arsenal árið 2006 frá Sao Paulo, en hann spilaði 96 leiki og skoraði sjö mörk fyrir enska úrvalsdeildarfélagið.

Hann var þó kominn aftarlega í goggunarröðina hjá félaginu og var því lánaður árið 2011 til Sao Paulo þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Hann hefur nú gert fjögurra ára samning við uppeldisfélagið.

Samningur hans hjá Arsenal átti að renna út sumar, en í stað þess náði Denilson og Arsenal samkomulagi um að rifta honum svo hann gæti fundið sér annað félag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.