Fotbolti.net
14.06.14 - 17:38
Valur Páll Eiríksson

Alan Irvine nýr stjóri WBA (Staðfest)

Irvine frá tíma sínum hjá Sheffield Wednesday.

Irvine frá tíma sínum hjá Sheffield Wednesday.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion tilkynnti rétt í þessu ráðningu klúbbsins á nýjum stjóra, Alan Irvine. West Brom hafa verið stjóralausir í rúman mánuð eftir að Pepe Mel fékk ekki endurnýjun á sínum samningi.
Hinn skoski Irvine kemur frá Everton þar sem hann hefur stýrt akademíu félagsins frá 2011. Hann skrifar undir 12 mánaða samning við West Brom með möguleika á framlengingu.

Irvine hefur ekki mikla reynslu sem aðalþjálfari en hann stýrði Preston North End í tvö ár frá 2007 til 2009 og Sheffield Wednesday í rúmt ár frá janúar 2010 til febrúar 2011.

Irvine er 55 ára gamall og á um 22. ára feril að baki. Hann vann í akademíum Blackburn og Newcastle áður en hann varð aðstoðarþjálfari David Moyes hjá Everton milli 2002 og 2007.

Heimild: Heimasíða West Brom

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.