14.06.16 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gasperini yfirgefur Genoa til að taka við Atalanta (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Gian Piero Gasperini hefur verið staðfestur sem nýr þjálfari Atalanta eftir þrjú ár við stjórnvölinn hjá Genoa.
Gasperini er 58 ára gamall og hefur stýrt fjórum liðum á þjálfaraferlinum, Crotone, Palermo og Inter auk Genoa.
Gasperini er 58 ára gamall og hefur stýrt fjórum liðum á þjálfaraferlinum, Crotone, Palermo og Inter auk Genoa.
Atalanta og Genoa enduðu bæði í neðri hluta ítölsku deildarinnar í vor, Genoa í 11. sæti með 46 stig og Atalanta stigi neðar.
Atalanta er fimmta félagið sem Gasperini tekur við og talið er að hann hafi fengið loforð um væna summu til leikmannakaupa í sumar.
Atalanta er fimmta félagið sem Gasperini tekur við og talið er að hann hafi fengið loforð um væna summu til leikmannakaupa í sumar.
