Fotbolti.net
14.06.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jonjoe Kenny til Hertha Berlin (Staðfest)

Jonjoe Kenny til Hertha Berlin (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jonjoe Kenny er genginn í raðir þýska félagsins Hertha Berlin og skrifar hann undir þriggja ára samning.

Kenny kemur á frjálsri sölu frá Everton þar sem hann fékk ekki nýjan samning.
Kenny var í sextán ár hjá Everton og lék alls fimmtíu leiki í úrvalsdeildinni.

Hann er 25 ára hægri bakvörður sem fæddur er í Liverpool. Hann hefur áður spilað í Þýsklanadi því tímabilið 2019-2020 var hann á láni hjá Schalke.

Hertha hélt sér uppi í Bundesliga með sigri gegn HSV í umspili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.