Fotbolti.net
14.06.26 - 16:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarninn

Byrjunarlið Keflavíkur og FH: Með bandið gegn uppeldisfélaginu

Alpha Conteh er mættur aftur í lið Keflavíkur.

Alpha Conteh er mættur aftur í lið Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir leik Keflavíkur og FH sem hefst núna klukkan 17:00 á HS Orku-vellinum í Keflavík.

Keflavík, sem er í sjöunda sæti, tapaði óvænt 6-1 gegn ÍBV í síðasta leik sínum. Frá þeim leik gerir Haraldur Freyr Guðmundsson tvær breytingar. Ernir Bjarnason og Alpha Conteh koma inn í byrjunarliðið fyrir Axel Inga Jóhannesson og Dag Inga Valsson.

FH, sem er á botninum með tvö stig, mætir með nákvæmlega sama lið og í 0-1 tapinu gegn ÍA í síðustu umferð. Ísak Óli Ólafsson er með fyrirliðabandið en hann er að mæta uppeldisfélagi sínu í dag.
Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
18. Ernir Bjarnason
20. Marin Brigic
21. Alpha Conteh
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson

Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
90. Arnór Borg Guðjohnsen
Ísak Óli mætir uppeldisfélaginu.

Ísak Óli mætir uppeldisfélaginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.