Fotbolti.net
14.06.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson

Marokkó setti sérstakt met á HM

Marokkó er með nítján leikmenn í hópnum sem eru fæddir í öðru landi

Marokkó er með nítján leikmenn í hópnum sem eru fæddir í öðru landi

Canon

Mynd: EPA

Landslið Marokkó setti met á heimsmeistaramótinu í 1-1 jafnteflinu gegn Brasilíu í gær.
Á einum tímapunkti í leiknum voru allir ellefu leikmenn Marokkó inni á vellinum fæddir utan Marokkó.

Það hefur aldrei áður gerst á HM að þjóð hafi verið með svo marga leikmenn inni á vellinum á sama tíma sem fæddir eru utan landsins sem þeir spila fyrir.

Markvörðurinn Yassine Bounou er fæddur í Montreal í Kanada en flutti aðeins þriggja ára gamall með fjölskyldu sinni til Casablanca í Marokkó.

Achraf Hakimi, fyrirliði landsliðsins, er fæddur og uppalinn í Madríd á meðan markaskorari Marokkó í gær, Ismael Saibari, er fæddur í Terrassa á Spáni. Chadi Riad er einnig fæddur á Spáni, en hann fæddist í Palma á Majorka.

Chemsdine Talbi og Bilal El Khannouss eru báðir fæddir í Belgíu og Noussair Mazraoui er fæddur í Hollandi. Fjórir leikmenn eru fæddir í Frakklandi; þeir Neil El Aynaoui, Issa Diop, Samy El Mourabet og nýliðinn Ayyoub Bouaddi, sem skipti yfir í marokkóska landsliðið rétt fyrir HM.

Alls eru nítján leikmenn í leikmannahópi Marokkó fæddir utan landsins. Þar má einnig nefna Brahim Diaz, sem er fæddur á Spáni. Azzedine Ounahi var eini leikmaðurinn í upprunalegu byrjunarliði Marokkó sem fæddur er í heimalandinu.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.