Fotbolti.net
14.06.26 - 14:42
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Ferran er drullusama um áhuga PSG

Ferran er drullusama um áhuga PSG
Canon

Mynd: EPA

Spænski landsliðsmaðurinn Ferran Torres segist ekki vera að hugsa sér til hreyfings í sumar.
Ferran, sem er 26 ára sóknarmaður Barcelona, fór á kostum á nýafstöðnu tímabili og skoraði 21 mark í öllum keppnum.

Hann hefur verið orðaður við Evrópumeistara Paris Saint-Germain síðustu daga, en kippir sér lítið upp við þann orðróm.

„Ég veit ekkert um PSG og er í raun drullusama,“ sagði Ferran við spænska fjölmiðla.

Ferran er uppalinn hjá Valencia en tók skrefið í ensku úrvalsdeildina árið 2020 þegar hann samdi við Manchester City. Þar náði hann sér aldrei almennilega á strik og fann ekki leið til að festa sig í sessi í liði Pep Guardiola eftir að hafa jafnað sig af meiðslum. Fór það svo að hann var seldur til Barcelona í janúar árið 2022.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.