Dembélé vill sjá Zidane taka við: „Messi getur unnið HM"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ousmane Dembélé, sem var valinn besti fótboltamaður heims í fyrra, er spenntur fyrir heimsmeistaramótinu með Frakklandi.
Frakkar hefja leik gegn Senegal á þriðjudaginn og má búast við að Dembélé byrji í gríðarlega öflugri sóknarlínu ásamt Kylian Mbappé, sem hefur legið undir mikilli gagnrýni þrátt fyrir magnaða tölfræði með Real Madrid.
„Það eru alltof margir sem gagnrýna Kylian. Mbappé er ótrúlegur fótboltamaður í heimsklassa auk þess að vera ótrúlega fínn náungi utan vallar. Fólk ætti ekki að vera svona grimmt gagnvart honum, það er ekki sanngjarnt. Hann er gagnrýndur fyrir hvað sem hann gerir," sagði Dembélé, sem var svo spurður út í mögulegan arftaka Didier Deschamps við stjórnvöl franska landsliðsins.
„Zinedine Zidane er goðsögn og ég vona að hann muni taka við franska landsliðinu einn daginn. Hann vann Meistaradeildina þrjú ár í röð sem þjálfari Real Madrid. Hann gæti náð ótrúlegum árangri með landsliðið."
Frakkland komst í úrslitaleik heimsmeistaramótsins á síðasta móti en tapaði þar eftir vítaspyrnukeppni gegn Argentínu. Mbappé lék á alls oddi og skoraði þrennu fyrir Frakkland í leiknum, sem dugði þó ekki til. Lionel Messi setti tvennu fyrir Argentínu sem endaði á að hampa sínum þriðja heimsmeistaratitli.
„Lionel Messi er besti fótboltamaður sem ég hef séð spila fótbolta. Hann er 38 ára gamall en hann er ennþá gjörsamlega stórkostlegur leikmaður. Hann er stórhættulegur og gæðin hans eru eilíf. Við þurfum að passa okkur, Leo getur unnið heimsmeistaramótið aftur."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!