Fotbolti.net
14.07.13 - 20:48
Magnús Már Einarsson

Aleksander Trajkovic í Víking R. (Staðfest)

Aleksander Trajkovic í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Vikingur.net

Víkingur R. hefur samið við Aleksander Trajkovic en hann hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga.

Trajkovic er 32 ára gamall en hann spilar sem miðvörður.
Ef allt gengur að óskum ætti hann að vera orðinn löglegur þegar Víkingur mætir Þrótti næstkomandi þriðjudag.

,,Aco, eins og hann er kallaður, er hávaxinn og líkmlega sterkur leikmaður sem spennandi verður að fylgjast með í sumar,\" segir á Vikingur.net.

Hann hefur áður leikið með liðum í tveimur efstu deildum Serbíu og í Kasakstan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.