Fotbolti.net
14.07.13 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Benatia til Roma (Staðfest)

Mehdi Benatia hefur verið lykilmaður í liði Udinese undanfarin þrjú tímabil.

Mehdi Benatia hefur verið lykilmaður í liði Udinese undanfarin þrjú tímabil.

Canon

Mynd: Getty Images

Mehdi Benatia er kominn til AS Roma frá Udinese fyrir 13.5 milljónir evra og á að fylla í skarð Marquinhos sem er líklega á leið til PSG.

Benatia er 26 ára gamall varnarmaður frá Marokkó og skrifaði undir 5 ára samning við félagið eftir að hafa verið í þrjú ár hjá Udinese.
Hjá Udinese skoraði Benatia fimm mörk í 72 leikjum og er talinn meðal betri varnarmanna ítölsku efstu deildarinnar.

Valerio Verre og Nicolas Lopez, 19 ára miðjumaður og sóknarmaður, eru þá á leið til Udinese fyrir 3.5 milljónir evra.

Verre hefur aldrei leikið með aðalliði Roma en Lopez skoraði jöfnunarmark gegn Catania í frumraun sinni með liðinu síðasta ágúst en tókst ekki að skora í næstu fimm leikjum sínum. Hann er með 10 mörk í 14 leikjum fyrir U20 ára landslið Úrúgvæ.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.