Fotbolti.net
14.07.13 - 12:38
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Sóley og María Björg taka fram skóna með KR (Staðfest)

Guðrún Sóley snýr aftur í KR.

Guðrún Sóley snýr aftur í KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið KR hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir seinni hlutann í 1. deild kvenna en María Björg Ágústsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir fyrrverandi landsliðskonur Íslands snúa báðar aftur í fótboltann til að spila með liðinu.
Guðrún Sóley er 32 ára gömul og er miðvörður. Hún spilaði 171 leik með KR og Breiðablik áður en hún hélt til Svíþjóðar árið 2009. Hún á að baki 65 A-landsleiki en hefur ekkert spilað eftir höfuðmeiðsli á Evrópumótinu árið 2009.

María Björg er 31 árs markvörður sem spilaði með Stjörnunni, KR og Val hér heima, alls 173 leiki áður en hún fór til Svíþjóðar. Hún á að baki 11 A-landsleiki en hætti í fótbolta árið 2011.

Báðar fá þær leikheimild með KR þegar félagaskiptaglugginn opnar á morgun en Björgvin Karl Gunnarsson þjálfari liðsins staðfesti við Fótbolta.net í hádeginu að þær muni verða til taks og spila með liðinu.

,,Þær eru til taks í seinni hlutanum, ég er að missa svo margar stelpur í nám,\" sagði Björgvin Karl. ,,Þær koma til okkar í lok júlí og byrja þá að æfa með liðinu,\" bætti hann við.

Guðrún Sóley og María Björg voru báðar í atvinnumennskunni í Svíþjóð þegar þær þurftu að leggja skóna á hilluna vegna höfuðmeiðsla. Guðrún Sóley lék með Kristianstad í Svíþjóð og María Björg með KIF Örebro. Björgvin Karl sagði þær báðar hafa náð sér af þeim meiðslum og séu í fínu standi.

,,Með þeim kemur reynsla sem getur hjálpað til,\" sagði hann en liðið er í 5. sæti B-riðils 1. deildar kvenna með 12 stig úr 6 leikjum en á leiki til góða á liðin fyrir ofan. Efstu tvö liðin fara í umspil um sæti í Pepsi-deildinni við efstu tvö liðin í A-riðlinum.

,,Við þurfum fyrst að komast í úrslitakeppnina, það er stóra málið,\" sagði Björgvin Karl aðspurður hvort hann stefni upp með liðið. ,,Þetta er ekki eins auðveldur riðill og hinn þar sem tvö lið eru að keppast um efstu sætin. Það eru fjögur til fimm hjá okkur að berjast.\"

KR er að fá fleiri leikmenn til liðs við sig því Ólöf Gerður Ísberg er komin til landsins aftur frá Danmörku og spilaði í 1-2 tapi gegn Grindavík í gær. Það var hennar fyrsti leikur á árinu. Þá er kólumbíska landsliðskonan Melissa Ortiz komin til félagsins og spilaði líka sinn fyrsta leik í gær.

KR missir níu leikmenn í nám í byrjun ágúst, Hrafnhildur Agnarsdóttir, Rebekka Sverrisdóttir, Selja Ósk Snorradóttir, Freyja Viðarsdótttir, Guðrún Johnson, Andrea Guðmundsdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir, Hanna Kristín Hannesdóttir og Kristín Sverrisdóttir fara allar út.

Björgvin stefnir á að styrkja liðið enn frekar ofan á þessar fjórar sem eru að koma og sagði: ,,Það væri ágætt að fá tvo leikmenn til viðbótar, við höfum það opið ef eitthvað kemur upp.\"
María Björg leikur með KR í 1. deildinni.

María Björg leikur með KR í 1. deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólöf Gerður Ísberg er byrjuð með KR að nýju.

Ólöf Gerður Ísberg er byrjuð með KR að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.