14.07.13 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leroy Fer til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich staðfestir kaupin á hollenska miðjumanninum Leroy Fer frá FC Twente og skrifar Fer undir fjögurra ára samning.
Fer er 23 ára gamall og er sjötti leikmaðurinn sem kemur til Norwich í sumar. Hann hefur skorað 21 mark í 71 leik fyrir Twente en hóf ferilinn hjá Feyenoord.

Leroy Fer var fyriliði U17 og U19 ára landsliða Hollendinga og var í lykilhlutverki á EM U21 árs í sumar.
Javier Garrido, Ricky Van Wolfsvinkel, Nathan Redmond, Martin Olsson og Carlo Nash eru hinir fimm mennirnir sem komu til Norwich í sumar.
,,Við erum mjög ánægðir með að vera komnir með jafn gæðamikinn leikmann og Leroy er,\" sagði Chris Hughton, knattspyrnustjóri Norwich.
,,Hann er fjölhæfur hollenskur landsliðsmaður og er gríðarlega leikreyndur, enda með yfir 100 leiki spilaða í efstu deild í Hollandi.\"

Heimild: Sky Sports