Fotbolti.net
14.07.13 - 12:33
Elvar Geir Magnússon

Matt Ratajczak í Fjölni (Staðfest)

Matt Ratajczak í leik með Fjölni á undirbúningstímabilinu.

Matt Ratajczak í leik með Fjölni á undirbúningstímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir í Grafarvogi hefur bætt við sig leikmanni en vinstri bakvörðurinn Matt Ratajczak fær leikheimild með liðinu á morgun þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Ratajczak er Bandaríkjamaður fæddur 1991 og kemur úr háskólaboltanum þar í landi.

Um miðjan maí náði hann samkomulagi við Fjölni um að leika með liðinu seinni hluta tímabilsins.

Hann lék ólöglegur með liðinu í Lengjubikarnum gegn Víkingi Ólafsvík 24. mars. Í kjölfarið fór Fjölnir í samningaviðræður við hann og niðurstaðan varð sú, að hans ósk, að hann myndi leika seinni hluta sumars með liðinu.

Á heimasíðu Williams Athletics segir Ratajczak spenntur fyrir þeirri áskorun að spila í íslenska boltanum og að hann kunni gríðarlega vel við land og þjóð eftir að hafa eytt tíma hér á Íslandi.

Mike Russo. sem var þjálfari hans, segir að Ratajczak sé virkilega öflugur varnarlega maður á móti manni, góður í loftinu varnar- og sóknarlega og búi yfir góðri sendingagetu; geti spyrnt boltanum langt fram völlinn með góðri nákvæmni.

Fjölnir er í fimmta sæti 1. deildarinnar og mætir Leikni á þriðjudaginn. Sá leikur verður sýndur beint á SportTv.is en Ratajczak verður löglegur í honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.