Fotbolti.net
14.07.13 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Quintero til Porto (Staðfest)

Quintero til Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juan Fernando Quintero er kominn til Porto og búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við portúgölsku meistarana.

Quintero var eftirsóttur af mörgum liðum í sumar og var meðal annars orðaður við Inter, Milan og Manchester United.
Quintero er tvítugur miðjumaður sem lék við hlið Birkis Bjarnasonar á miðju Pescara síðari hluta nýliðins tímabils.

Quintero þótti standa sig einstaklega vel á miðju Pescara en það dugði ekki til að nýliðarnir héldu sér uppi í A deild á Ítalíu og eftir að lánssamningur hans við Pescara rann út ákvað Porto að kaupa hann áður en önnur stórlið gætu nælt sér í hann.

Quintero, sem er kólumbískur, kemur frá kólumbíska félaginu Atlético Nacional og er mjög ánægður með að vera kominn til Porto.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa gengið til liðs við Porto, ég skrifa undir fjögurra ára samning,\" sagði Quintero við O Jogo.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.