14.07.14 - 14:55
Hafliði Breiðfjörð
Sandra Sif í FH (Staðfest)

Sandra Sif í leik með Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sandra Sif Magnúsdóttir er gengin í raðir FH frá Breiðabliki og fær leikheimild með sínu nýja félagi á morgun.
Sandra Sif, sem er 25 ára gömul, getur bæði leikið á miðju og í vörn. Hún lék með Välerenga í Noregi í fyrra en sneri aftur heim í Breiðablik í febrúar.
Hún átti erfitt uppdráttar og fékk lítið að spreyta sig hjá Hlyni Svan Eiríkssyni þjálfara og tók bara þátt í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni í sumar. Hún ákvað því að leita á önnur mið og hefur samið við FH.
Hún hefur leikið 128 leiki fyrir Breiðablik í meistaraflokki og skorað í þeim 27 mörk.
Þá hefur hún leikið 8 leiki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands og skorað í þeim 2 mörk.