Fotbolti.net
14.07.14 - 22:33
Brynjar Ingi Erluson

Scolari hættur með brasilíska landsliðið (Staðfest)

Scolari hættur með brasilíska landsliðið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Luiz Felipe Scolari er hættur sem þjálfari brasilíska landsliðsins en brasilíska knattspyrnusambandið greinir frá þessu á heimasíðu sinni í kvöld.
Scolari, sem er 65 ára gamall, var talinn hafa sagt af sér snemma í morgun eftir að Brasilíu mistókst að vinna HM í heimalandinu.

Brasilía fékk skell í undanúrslitum mótsins þar sem liðið tapaði 7-1 fyrir Þýskalandi sem fór alla leið í keppninni.

Liðið tapaði þá 3-0 fyrir Hollandi í leik um þriðja sæti mótsins en í kjölfarið af því sagði Scolari af sér í dag.

Þetta var í annað sinn á ferlinum sem Scolari þjálfar brasilíska landsliðið en síðast varð hann heimsmeistari með liðið árið 2002. Þá hefur hann einnig þjálfað Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og portúgalska landsliðið.

Óvíst er hver tekur við brasilíska liðinu af honum en ljóst er að knattspyrnusambandið þarf að finna annan í hans stað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.