14.07.16 - 18:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ási Þórhallsson í Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta hefur samið við miðvörðinn Ása Þórhallsson um að leika með liðinu út þetta leiktímabil. Ási kemur á láni frá Keflavík, sem leikur í Inkasso-deildinni.
Frá þessu er greint í frétt frá knattspyrnudeild Gróttu.

Ási verður löglegur með Gróttu þegar félgasskiptaglugginn opnar á morgun og gæti spilað þegar liðið mætir Hetti á laugardaginn næstkomandi.
Ási er fæddur 1995 og er uppalinn hjá Keflavík. Þá var hann í herbúðum FH-inga í tvö ár og lék loks 18 leiki með Sindra síðasta sumar og skoraði í þeim tvö mörk. Snemma árs sneri Ási loks aftur til uppeldisfélagsins. Hann hefur aðeins komið við sögu í einum leik hjá Keflavík þetta sumarið.
„Ási er hávaxinn miðvörður og sterkur í loftinu og góð viðbót við leikmannahóp meistaraflokks karla. Við bjóðum hann velkominn á Nesið!\" segir í fréttinni frá knattspyrnudeild Gróttu.
Grótta er í toppbaráttunni í 2. deild karla, en liðið er í augnablikinu með 19 stig í 3. sæti deildarinnar.