Fotbolti.net
14.07.16 - 17:02
Elvar Geir Magnússon

Danskur miðjumaður í Þrótt (Staðfest)

Sörensen með Gregg Ryder, þjálfara Þróttar.

Sörensen með Gregg Ryder, þjálfara Þróttar.

Canon

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur undirritað samning út tímabilið við danska miðjumanninn Christian Nikolaj Sörensen, sem kemur til liðsins frá danska 1. deildar liðinu Silkeborg IF. Christian á að baki leiki með U19 og U21 landsliðum Danmerkur.
Christian er 23 ára gamall og hefur verið atvinnumaður frá sautján ára aldri. Hann hóf ferilinn hjá Verninge, en hefur einnig spilað hjá Sanderum, Næsby BK og Odense Boldklub. Christian hefur jöfnum höndum leikið vinstra megin á miðjunni og sem vinstri vængmaður.

Ætla að styrkja liðið enn frekar
„Christian hefur nú þegar lokið vikulöngum reynslutíma hjá okkur og stóð sig afskaplega vel. Hann var meðal annars besti maður vallarins í æfingaleik við topplið í Pepsi um daginn, sem endaði með jafntefli. Christian er sterkur, fljótur og sókndjarfur leikmaður með frábærar sendingar, sem ég tel að muni gagnast okkur vel. Ég vil ekki gefa upp hvort við bætum fleiri mönnum við hópinn, en tel það þó líklegt. Get til dæmis staðfest að við erum bæði að skoða varnarmenn og framherja,“ segir Gregg Ryder þjálfari Þróttar.

Líst vel á hjartað í Reykjavík
„Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum hjá Þrótti. Þetta er félag með langa sögu, mikinn baráttuanda og kallar heimavöll sinn hjartað í Reykjavík. Mér líst vel á þetta allt saman, er hungraður í að spila, ná árangri og sigra. Hjá Þrótti hitti ég fyrir tvo Dani, Kristian Larsen og Sebastian Steve Cann-Svärd, auk þess sem ég þekki fleiri Dani sem spila hér á landi og eru mjög ánægðir. Þannig að það gerir lífið ennþá auðveldara. Þetta á eftir að verða magnað sumar, sérstaklega ef liðið og stuðningsmenn snúa bökum saman,“ segir Christian Sörensen.

Staðráðnir í að snúa gengi liðsins við
„Við hjá Þrótti hugum núna að styrkingum og erum staðráðnir í að snúa gengi liðsins við eftir dálítið erfitt tímabil sem hefur einkennst af miklum meiðslum og hreyfingum á mannskap, sem hefur bitnað niður á samhæfingu liðsins. En svona er fótboltinn bara. Það tekur tíma að byggja upp nýtt lið og fá þétta samhæfingu í það. Stjórn knattspyrnudeildar og stuðningsmenn standa þó einhuga að baki liðinu og við lítum á það sem lykilatriði í frekari árangri. Markaðurinn hérna heima fyrir leikmenn í hæsta gæðaflokki er samt afar takmarkaður og fátt í boði á verði sem við ráðum við. Við erum því tilneyddir til að horfa eitthvað út fyrir landsteinana,“ segir Haraldur Bjarnason formaður knattspyrnudeildar Þróttar.

Fjórir leikmenn á förum frá félaginu
Þess má geta að enski bakvörðurinn Callum Brittain og framherjinn Kabongo Tshimanga eru báðir á förum frá Þrótti, en þeir voru á lánssamningi frá MK Dons fram til 18. júlí. Landi þeirra, framherjinn Dean Morgan, er einnig á förum á sama tíma, en hann hefur ekki náð að standa undir væntingum. Framherjinn Hilmar Ástþórsson hefur sömuleiðis yfirgefið félagið.

Þróttur situr í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar og í harðri baráttu fyrir lífi sínu í deild þeirra bestu.
Sörensen (til vinstri) í leik með Silkeborg.

Sörensen (til vinstri) í leik með Silkeborg.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.