14.07.16 - 09:58
Magnús Már Einarsson
Hallgrímur Jónasson til Lyngby (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni hefur keypt varnarmanninn Hallgrím Jónasson frá OB. Hallgrímur skrifaði undir tveggja ára samning við Lyngby.
Lyngby sigraði dönsku B-deildina á síðasta tímabili og er að styrkja sig fyrir úrvalsdeildina.
„Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið Hallgrím til Lyngby,\" sagði David Nielsen þjálfari Lyngby.
Hjá Lyngby eru fyrir tveir miðverðir sem þekkja íslenska boltann en það eru þeir Thomas Guldborg Christensen og Thomas Sörensen.
Thomas Guldborg spilaði með Val í fyrra en Thomas Sörensen spilaði með ÍA árið 2013. Hallgrímur mun væntanlega leika við hliðina á öðrum hvorum þeirra í hjarta varnarinnar.
Hinn þrítugi Hallgrímur fór til OB í fyrra eftir þriggja ára dvöl hjá SönderjyskE.
Hallgrímur var í algjöru lykilhlutverki í vörn OB á síðasta tímabili en liðið endaði þá í 7. sæti af tólf liðum í dönsku úrvalsdeildinni.
Hallgrímur hefur skorað þrjú mörk í fimmtán landsleikjum á ferli sínum. Hallgrímur var í hópnum í undankeppni EM en var ekki valinn í 23-manna hópinn sem fór á EM.