Fotbolti.net
14.07.16 - 10:32
Magnús Már Einarsson

Huginn fær framherja úr úrvalsdeildinni í Gíbraltar (Staðfest)

Úr leik hjá Hugin í sumar.

Úr leik hjá Hugin í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Huginn hefur fengið spænska framherjann Diego Merchan Cabello í sínar raðir.

Diego spilaði síðast með St Joseph\'s í úrvalsdeildinni á Gíbraltar en liðið endaði í þriðja sæti þar á nýliðnu tímabili.
Diego er 21 árs gamall en hann á að reyna að hjálpa Seyðfirðingum að skora fleiri mörk.

Huginn hefur einungis skorað fimm mörk í Inkasso-deildinni í sumar en liðið er í neðsta sæti deildarinnar með fimm stig.

Næsti leikur Hugins er á laugardaginn þegar Selfoss kemur í heimsókn á Seyðisfjörð en Diego getur leikið sinn fyrsta leik þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.