14.07.16 - 11:57
Elvar Geir Magnússon
Ingimundur Níels í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimundur Níels Óskarsson er genginn í raðir Fjölnismanna og verður löglegur með Grafarvogsliðinu þegar félagskiptaglugginn verður opnaður á morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölni.

Ingimundur verðu væntanlega í leikmannahópi Fjölnis sem mætir Breiðabliki í Pepsi-deildinni á sunnudag. Fjölnismenn eru í öðru sæti Pepsi-deildarinnar, tveimur stigum á eftir Íslandsmeisturum FH.
Ingimundur, sem er þrítugur kantmaður, þekkir vel til í Grafarvoginum en hann er uppalinn hjá félaginu og lék 28 leiki með liðinu í 1. deildinni 2004-2006.
Hann gekk svo í raðir KR og fór þaðan til Fylkis og svo FH. Hann gekk aftur í raðir Fylkis fyrir tímabilið í fyrra en náði sér ekki á strik.
Hann hefur ekki átt fast sæti í Árbæjarliðinu og aðeins komið við sögu í fjórum leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.