Fotbolti.net
14.07.16 - 19:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jordon Ibe til Bournemouth (Staðfest)

Jordon Ibe er farinn frá Liverpool

Jordon Ibe er farinn frá Liverpool

Canon

Mynd: Getty Images

Jordon Ibe er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Bournemouth. Hann kemur til liðsins frá Liverpool og talið er að Bournemouth muni borga 15 milljónir punda fyrir hann. Ef satt reynist er hann dýrasti leikmaðurinn í sögu Bournemouth.
Ibe, sem er tvítugur að aldri, kom til Liverpool frá Wycombe Wanderers árið 2011. Hann náði hins vegar aldrei að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið og spilaði að lokum aðeins 58 leiki á tíma sínum hjá Liverpool.

Hann fékk ekki traustið eftir að Jurgen Klopp tók við á síðasta tímabili og honum var gefið leyfi til þess að ræða við Bournemouth í byrjun júlí.

„Okkur hlakkar til þess að sjá hann þroskast, hann er gríðarlega efnilegur,\" sagði Neil Blake, framkvæmdastjóri Bournemouth um Ibe.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Bournemouth kaupir þetta sumarið. Fyrir hafði félagið samið við Emerson Hyndman, Lys Mousset, Nathan Ake og Lewis Cook.

Bournemouth endaði í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og ætlar sér stærri hluti og komandi tímabili.

BREAKING: #afcb complete the signing of Jordon Ibe from #lfc! More: https://t.co/ZMf9T3U3r3 pic.twitter.com/1ZDNKnL4td

— AFC Bournemouth (@afcbournemouth) July 14, 2016

Heimild: Heimasíða Bournemouth

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.