Fotbolti.net
14.07.16 - 16:50
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Juan Jesus til Roma (Staðfest)

Juan Jesus á fréttamannafundi.

Juan Jesus á fréttamannafundi.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur fengið til sín Juan Jesus, brasilískan varnarmann frá Inter.

Leikmaðurinn kemur á lánssamningi til að byrja með en Roma hefur rétt á að kauupa hann alfarið.
„Ég er gríðarlega ánægður með að hafa gengið í raðir þessa stóra félags og get ekki beðið eftir því að byrja. Ég mun lofa stuðningsmönnum því að ég mun alltaf gefa mig allan í leiki og mun aldrei hætta að hlaupa fyrir Roma,\" segir Juan Jesus.

Juan Jesus er 25 ára miðvörður sem einnig getur leikið sem vinstri bakvörður. Hann á fjóra A-landsleiki fyrir Brasilíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.