Fotbolti.net
14.07.16 - 11:00
Magnús Már Einarsson

KF fær spænskan framherja (Staðfest)

Úr leik hjá KF í fyrra.

Úr leik hjá KF í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KF hefur fengið spænska framherjann Isaac Ruben Rodriguez Ojeda til liðs við sig fyrir síðari hluta tímabils í 2. deildinni.

Isaac er fæddur árið 1987.
KF hefur einungis skorað þrjú mörk í tíu leikjum í 2. deildinni og Isaac á að reyna að lífga upp á sóknarleik liðsins.

KF er á botni deildarinnar með fimm stig en liðið hefur verið á uppleið í síðustu tveimur leikjum.

Á laugardaginn sigraði KF lið Njarðvíkur 1-0 og í fyrrakvöld gerði liðið markalaust jafntefli við Gróttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.