14.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nick Powell farinn frá Man Utd (Staðfest)

Powell mun fara aftur til Wigan

Mynd: Getty Images

Powell mun fara aftur til Wigan

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Nick Powell er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Wigan.
Hann var síðast á mála hjá Man. Utd, en mun nú ganga til liðs við Wigan í Championship-deildinni.
Hinn 22 ára gamli Powell þekkir vel til hjá Wigan, en hann var í láni hjá félaginu tímabilið 2013/14 og skoraði þá 12 mörk í 41 leik.
Sir Alex Ferguson keypti Powell til Man. Utd fyrir 3 milljónir punda frá Crewe árið 2012. Hann náði aldrei að vinna sér inn sæti í byrjunarliði United og var lánaður til Wigan, Leicester City og Hull City áður en samningur hans rann út í júní síðastliðnum.
„Hann er einn af þeim leikmönnum sem við vildum fá í sumar og við erum því ánægðir með að hafa fengið hann,\" sagði Gary Caldwell, stjóri Wigan, um kaupin á Powell.
Wigan vann sér sæti í Championship-deildinni á nýliðnu tímabili eftir eitt tímabil í þriðju efstu deild Englands, League One.

Heimild: BBC