14.07.16 - 13:40
Magnús Már Einarsson
Sveinn Aron Guðjohnsen í Val (Staðfest)

Sveinn Aron og faðir hans, Eiður Smári.

Mynd: Valur

Sveinn Aron og faðir hans, Eiður Smári.

Mynd: Valur
Valur hefur fengið Svein Aron Guðjohnsen til liðs við sig frá HK. Sveinn Aron gerði samning við Val sem gildir út árið 2018.
Sveinn Aron var ekki með KSÍ samning við HK og því þarf Valur ekki að greiða fyrir hann.
Hinn 18 ára gamli Sveinn Aron hefur skorað fimm mörk í tíu leikjum í Inkasso-deildinni með HK í sumar.
Sveinn Aron skoraði meðal annars mark HK í 1-1 jafntefli gegn Hugin í fyrrakvöld með skoti beint úr aukaspyrnu.
Sveinn Aron er mjög efnilegur en hann á að baki leiki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Eiður Smári Guðjohnsen, faðir Sveins, hóf meistaraflokksferil sinn með Val á sínum tíma og afi hans, Arnór Guðjohnsen, spilaði með einnig með liðinu á sínum tíma.