Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. júlí 2020 17:56
Brynjar Ingi Erluson
Championship: WBA missteig sig gegn Fulham
WBA tókst ekki að skora gegn Fulham í kvöld
WBA tókst ekki að skora gegn Fulham í kvöld
Mynd: Getty Images
West Brom 0 - 0 Fulham

WBA missteig sig í baráttunni um titilinn í ensku B-deildinni í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli við Fulham á The Hawthorns-leikvanginum.

WBA hefur verið í harðri baráttu við Leeds um toppsætið á þessari leiktíð en nú er Leeds komið í væna stöðu.

Heimamönnum tókst ekki að skora og átti liðið tólf skot, þó aðeins tvö þeirra á markið.

Þessi úrslit þýða það að WBA er í öðru sæti með 82 stig eftir 44 leiki, tveimur stigum á eftir Leeds sem mætir Barnsley á fimmtudag og getur liðið mögulega tryggt úrvalsdeildarsæti ef Brentford tapar stigum á morgun. Fulham á enn möguleika á að ná öðru sæti en liðið er með 77 stig í 4. sæti og er öruggt með umspilssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner