Fotbolti.net
14.07.22 - 10:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Barcelona nær samkomulagi við Dembele (Staðfest)

Barcelona nær samkomulagi við Dembele (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Ousmane Dembele á ferlinum hefur legið í lausu lofti í ansi langan tíma en hann hefur nú loksins náð samkomulagi við Barcelona og hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2024.

Síðasti samningur hans við félagið rann út um mánaðarmótin en síðastliðið ár hefur verið ansi skrautlegt hjá þessum 25 ára gamla frakka.

Hann var settur út í kuldann þar sem hann vildi ekki semja við félagið en hann spilaði aðeins 32 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Hann var lengi vel orðaður í burt frá félaginu.

Hann var meðal annars orðaður við Chelsea en enska liðið festi kaup á Raheem Sterling frá Manchester City í gær.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.