Fotbolti.net
14.07.22 - 14:11
Elvar Geir Magnússon

Branthwaite lánaður til PSV (Staðfest)

Branthwaite lánaður til PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jarrad Branthwaite, varnarmaður Everton, hefur verið lánaður frá Everton til PSV Eindhoven.

Marcel Brands, fyrrum yfirmaður fótboltamála hjá Everton, er mikill aðdáandi miðvarðarins tvítuga en Brands starfar nú hjá PSV.
Branthwaite hefur færst aftar í goggunarröðinni hjá Everton eftir að James Tarkowski var fenginn frá Burnley á frjálsri sölu.

Talið er að hollenski boltinn sé góður vettvangur til að gefa Branthwaite aukna reynslu í aðalliðsbolta.

PSV hafnaði í öðru sæti hollensku deildarnar og verður í Meistaradeildinni á komandi tímabili. Veikleiki PSV á síðasta tímabili var varnarleikurinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.